Á landi og sjó

Ævintýraleg 3 - 5 daga sigling um Jökulfirði og gönguferðir á Hornstrandir
Júlí - September / Verð 162.000 (3dagar) - 270.000kr (5dagar) // Gisting, allur matur og leiðsögn.

Ferðin í hnotskurn

Jökulfirðir eru ólíkir öðrum fjörðum á Íslandi – þverskornir eins og þorskur í elsta berg landsins örskammt frá heimskautsbaug. Þar sem náttúran hefur farið sínu fram frá lokum ísaldar óháð afskiptum okkar mannanna hin síðari ár. Þar sem veturinn er langur og dimmur en sumarið stutt og bjart. Þar sem mannlíf var blómlegt og búskapur um aldir en vélvæðingin steig aldrei á land. Þar sem refurinn og sjófuglarnir ráða nú ríkjum en tími og hégómi hefur enga þýðingu.

Þangað ætlum við að sigla í þéttum og skemmtilegum hópi um borð seglskútunni VHF Aurora og upplifa Hornstrandir í sumarklæðum af sjó og landi. Við gistum um borð í bátnum og snæðum saman morgunverð og smyrjum nesti fyrir daginn. Svo göngum dagleiðir um firði og fjöll – frá fjöru til fjöru – þar sem Aurora bíður okkar í lok dags með ilmandi kaffi og kræsingar. Kannski veiðum við okkur til matar eða týnum krækling eða annað sjávarfang úr matarkistunni og borðum saman herramannsmat sem áhöfnin reiðir fram. Ræðum það sem fyrir augun ber og tilfinningarnar sem sjórinn og landið kallar óhjákvæmilega fram í okkur. Fræðumst um sögu lands og lýðs á Hornströndum en fræðum einnig hvort með hugmyndum okkar og sögum sem við höfum öll að segja.

Gönguleiðsögn

Davíð A Stefánsson

Davíð er landfræðingur sem starfar sem sérfræðingur á sviði sjálfbærrar landnýtingar einhversstaðar í stjórnsýslunni. Þrátt fyrir gervi hins þurra opinbera starfsmanns ólgar innra með Davíð ástríðufullur náttúruverndarsinni, aðgerðasinni og áhuga-náttúru-ljósmyndari.

Ferðatilhögun:

  • Lagt af stað og komið aftur að landi á Ísafirði

  • Sigling um Jökulfirði og göngur um Hornstrandir

  • 3 - 5 daga ferð á sjó og landi (Valkvætt)

  • Þægileg sigling og gönguferðir sem henta flestum

  • Gisting um borð í Auroru

  • Allur matur innifalinn

  • Farþegafjöldi 8

  • Farþegar verða að koma sér sjálfir til og frá Ísafirði

Frá degi til dags:

Dagur 1: Ísafjörður – Hrafnsfjörður – Lónafjörður (7Km - 550m Elevation - 4 Hours)

Ævintýrið hefst snemma morguns við bryggjusporðinn á Ísafirði þar sem Aurora hvílir þokkafull í höfninni ásamt eftirvæntingararfullri áhöfninni. Við tekur 4-6 klst stím í Hrafnsfjörð í botni Jökulfjarða þar sem við tökum land við húsatóftirnar að Álfstöðum.

Þá er komið að eftirmiðdagsgöngu frá Hrafnsfirði um Bolungarvíkurheiði og yfir í Lónafjörð þar sem Aurora bíður okkar við Hvanneyri. Á leiðinni getum við leitt hugann að ástarsögunni um Fjalla- Eyvind og Höllu sem bjuggu um tíma í Hrafnsfirði og þar sem þau eru sögð hvíla beinin. Gangan er ákjósanleg upphitun fyrir lengri og stífari leggi síðar í ferðinni.

Dagur 2: Lónafjörður – Veiðileysufjörður (8Km - 550m Elevation - 4 Hours)

Gengið er úr Lónafirði frá Snoðseyri um Kvíarfjalla og yfir á Karlsstaði í Veiðileysfirði. Þar má gera ráð fyrir grýttum skriðum og smá snjó sem bráðnar aldrei á fjallinu en einnig er viðbúið að við göngum fram á friðsæl fjallavötn og ævaforn jarðfræðileg fyrirbæri sem við reynum að útskýra og skilja. Óvíða er jafn afskekkt á Íslandi og óbyggðirnar jafn áþreifanlegar og heillandi.

Dagur 3: Veiðileysufjörður – Hesteyrarfjörður   (12Km - 650m Elevation - 5 Hours)

Gengið frá Meleyri í Veiðileysufirði um Kjaransvíkurskarð og yfir á Álfteyri í Hesteyrarfirði. Í Hesteyrarfirði varð til vísir að þorpi á 19. öld og í Veiðileysufirði var nokkuð þétt búið en þar var einnig hvalstöð um tíma og síðar síldarvinnsla sem rann sitt skeið þegar síldin hvarf. Víða á Horströndum eru ríkar af minjar um búsetu og ýmiskonar umsvif sem kalla fram hugrenninga um daglegt líf og störf fólks á hjara veraldar langt fram á síðustu öld.

Dagur 4 (5 daga val): Hesteyrarfjörður - Aðalvík   (12Km - 300m Elevation - 5 Hours)

Fylgjum vörðunum frá Hesteyri um Hesteyrarskarð að Látrum í Aðalvík, hjarta Hornstranda. Lending báta þótti erfiði í Aðalvík en þaðan er stutt á fiskimiðin og þar byggðist upp þorp líkt og á Hesteyri. Aðalvík er óvenju láglend og grösug miðað við Hornstrandir og ágætt ræktarland sem þrátt fyrir almenna gróður- og jarðvegseyðingu á Íslandi hefur farið mikið fram síðan Hornstrandir voru friðaðar sem friðland 1973.   

Dagur 5 (5daga val): Aðalvík – Straumnesfjall – Ísafjörður     (10Km - 450m Elevation - 5 Hours)

Í lok ferðarinnar og áður en haldið er til baka til Ísafjarðar ætlum við að ganga á Straumnesfjall og skoða merkilegar minjar um veru varnarliðsins hérlendis. Kaninn byggði radarstöð á fjallinu undir lok sjötta áratugarins sem var ætlað að fylgjast með flugi Sovéskra sprengiflugvéla yfir Norðaustanverðu Atlantshafi. Stöðin var starfrækt í örfá ár og lokað 1962 en eftir standa minjar um valdabrölt stórveldanna og tortyggni kaldastríðsins.

Að lokinni fjallgöngunni stígum við um borð í Auroru og siglum í heimahöfn á Ísafirði.